mánudagur, maí 15, 2006

Já það hlaut að koma að því........
að kerlingin mundi blogga, en það er nú bara þannig að það er erfitt að blogga ef manni finnst maður bara alls ekkert hafa til málanna að leggja, en ég ætla að reyna að segja ykkur eithvað.

Ég byrjaði að vinna aftur núna á mánudaginn síðasta það er svosum ekkert til frásögu færandi same old same old.... en bara nokkuð skemmtilegra en mig minnti. Já það var þá bara eftir allt saman bara nokkuð gaman að vinna. Ég hef að vísu alltaf verið dugleg að vinna það vantar ekki en það var ekkert alltaf skemmtilegt að vakna og takast á við hversdagslífið, en miðað við að vera heima og bíða eftir að litli unginn myndi vakna eða myndi kúka á sig þá er vinnan bara nokkuð skemmtileg, ég ætla að vona að ég fái ekki á mig skothríð frá mæðrum lítilla barna því auðvitað elska ég börnin mín skilyrðilaust en ég bara er ekki týpan til að horfa á barnið og tala við sjálfan mig....... En það er jafnframt rosalega skemmtilegt að fara úr vinnunni kl 13 drífa sig inn í Hafnarfjörð svo ég geti sótt litla skinnið sem er búið að sofa eiginlega allan tíman sem ég var í burtu.

Svo er það júróvision keppnin og verður heljarinnar partý hjá okkur að því tilefni, það verður hrikalega skemmtilegt skilurðu!!!! Maður er nú orðin pínu hræddur um að Silvía sé algjörlega að kúka yfir þessa keppni og er ég svolítið hrædd um að við fáum ekki að taka þátt aftur í bráð og þar með falla okkar árlegu júrópartý niður nema náttúrlega við finnum bara einhverja aðra þjóð til að halda með, spurning að skoða það.

Rosalega er tíminn fljótur að líða, það er ár síðan við skrifuðum undir kaupsamninginn af Bæjarholtinu og við erum ekki ennþá búin að koma okkur fullkomlega fyrir, krakkaherbergin eru ókláruð, ætli maður noti ekki sumarfríið til að klára það og svo er bara fullt af hlutum sem okkur langar til að gera t.d flísaleggja svalirnar það ætti ekki að vera svo mikið mál. Maður verður bara að blikka kallinn, því ekki kann ég að flísaleggja, vonandi kann hann það! Þegar maður fer að láta sig dreyma um að breyta íbúðinni þá vill sá draumur oft vinda uppá sig, t.d ef maður ætlar að skipta út eldhúinnréttingunni þá verður maður að skipta um gólfefni, og ef að maður skiptir út gólfefnum þá er um að gera að skipta um hurðar svona í stíl við eldhúsið og ef maður er komin með hurðarnar þá er um að gera að láta sig vaða í skápana svona til að tapa ekki heildarsvipnum.... Það er um að gera að hætta að láta sig dreyma og fara frekar að safna.

með þessum orðum kveð ég og býð góða nótt
Ása Sóley

laugardagur, apríl 22, 2006

GLEÐILEGT SUMAR;)

Það var einu sinni kona sem gleymdi öllum hlutum, hún var ekki bara sljó heldur súpersljó.......
Þið þarna sem eruð kanski svolítið fúl útí mig þá meina ég ekkert með þessu og þetta fer nú kanski að ganga til baka. Málið er að amma mín hringdi og sagðist vera búin að bíða og bíða eftir því að ég myndi hringja en ekkert gerðist og svo er kona í danmörku ennþá að bíða eftir afmælisgjöf frá mér (ég er nefnilega í svona afmælisleik) hún er sko búin að bíða síðan í lok febrúar, þetta er ekki eðlilegt ég hlýt að geta tekið eithvða vitamín við þessu!!!!!!

Núna er mín bara byrjuð í ræktinni, þannig er mál með vexti að það bara hringdi í mig einkaþjálfi og spurði hvort ég vildi koma í ræktina með sér, og viti menn ég bara skellti mér og ég ætla að æfa með henni 3svar í viku. Og ég get ekki líst því hvað er allt öðruvísi að æfa með manneskju sem veit hvða hún er að gera og ég er barasta með harðsperrur á stöðum sem ég vissi ekki að það væru vöðvar á.;)

Páskarnir voru frábærir við einbeittum okkur mikið við að slappa af því ekki var margt annað gert, foreldrar mínir voru erlendis þannig að ekki fór mikið fyrir matarboðum, en við Einar slóum bara upp veislum fyrir okkur hérna á heimilinu og það var bara æðislegt. En mig langar ekkert í súkkulaði því ég fékk nánast ógeð af því... við fjölskyldan fengu hvorki meira né minna en 8 páskaegg og eftir reikning þá sáum við að þetta var um 3 og hálft kíló að sælgæti ojojojjojjo.
Þar er eins gott að byrja að hrista spikið eftir svona át!!!!! Svo gerðist ég svo fræg að fara að djamma um páskana það er svo sem ekkert sem mig langar til að segja um það annað en það var gaman en líðanin daginn eftir var ógeð svo mikið ógeð að það verður langt þangað til annað eins djamm verður tekið:/

Það er nú ekkert sérstakt sem ég hef að segja ég vildi bara láta þá vita sem voru farnir að hafa áhyggjur af mér vegna lélegra skrifa hér inni, þá er allt í lagi með mig og ég lofa að fara að bæta mig þetta gengur ekki svona.

Kveðja Ása Sóley sem skrifar úr sólinni því það er nú komið sumar (ég ímynda mér bara sól, því það skín aldrei sól á þessu auma landi:( )

þriðjudagur, mars 28, 2006

Jibbí.........
Ég er búin að missa 1kg, það er allavegana byrjunnin! Ég er nefnilega í keppni við hann Andra vinnufélaga við ætlum bæði að missa 5kg áður en ég byrja að vinna 8.maí, sá sem tapar hann þarf að borga hinum 2 kippur en ef okkur tekst báðum að standa við þessa áskorun þá förum við ásamt mökum út að borða já borða borða borða, alltaf gott að borða;) Ég dreg þau bara á grænan kost eða eithvað þvíum líkt.......

En nóg um það helgin var að klárast og þetta var bara frábær helgi, Einar þurfti ekkert að vinna og við fórum í matarboð annan daginn og við héldum matarboð hinn daginn. Við vöknuðum snemma báða dagana fórum í ungbarnasund með Ester Unu á laugardagsmorguninn og það var rosalega gaman hún er svo dugleg að kafa þessi elska. Svo á sunnudagsmorguninn fórum við í morgungöngutúr það var rosalega gott. Ég er að verða svo mikil fjölskyldu manneskja, ég man þá tíð er ég beið eftir því að það kæmi helgi til að ég gæti farið út að djamma, svo kynntist ég Einari og átti Elvar þannig að þar kom smá pása í djamminu.... þegar Elvar Máni var um 2 ára þá tók ég djammið upp aftur og það var oft djammað langt framm undir morgun. Svo allt í einu núna það bara hef ég þetta ekki í mér lengur??? já skrítið þegar maður verður gamall á einni nóttu:/ Kannski er þetta vegna þess að núna er svo lang fyrir mig að sækja djammið eða er þetta vegna þess að Jórunn mín er ekki á landinu eða er þetta vegna þess að ég þroskaðist loksins við það að eignast annað barn... núna er þetta einhvern veginn svona alvöru fjölskylda "kjarnafjölskyldan". Það er nú kannski ekkert að marka Ester Una bara orðin 4 og hálfs mánaða, kannski kemur andinn yfir mig þegar hún stækkar aðeins;)

Ég hlakka til að fara að vinna!! hitta fólk, hætta að tala við sjálfan mig og VAKNA KL 07:00!!!!
Það verður mikill munur þegar maður vaknar og gerir eithvað úr deginum, dagurinn mun líklega virðast lengri og ég verð eflaust duglegri.

Ég kveð í bili
Ása átaksgella

miðvikudagur, mars 22, 2006

Af hverju er maður alltaf í því að miða sig við aðra???? Er það bara eithvað innbyggt í mann?

Málið er að ég ætlaði alltaf bara að vera heima hjá Ester Unu í 6 mánuði og síðan ætlaði ég að fara að vinna í svona 75% vinnu, ágætis plan því ég sem manneskja þarf bara á því að halda að komast út frá heimilinu svo ég missi ekki geðheilsuna!!!
Svo fór ég að stað til að hitta dagmömmuna og sjá aðstæður ofl. Þegar út var komið þá helltist yfir mig svo mikil sektarkennd yfir því að ég væri bara ömurlegasta mamman sem gengur á jörðinni :(
Ég hugsa ekki nægilega vel um velferð barnsins "greinilega" því það vita það nú allir að það er best fyrir barnið að vera heima hjá foreldrunum eins lengi og hægt er og helst þangað til það kemst inná leikskóla, þetta segja mæður í dag ###væl###!!!
Þegar ég var svo búin að gráta og huga málið til enda þá komst ég að þeirri niðurstöðu að það væri betra fyrir börnin mín að eiga glaða og hamingusama mömmu sem þau eyði part úr degi með heldur en að vera alltaf með mömmu en hún væri þreytt, viðvæm og döpur.
Með þessa ákvörðun gékk ég á fund yfirmanns míns og við sættumst á að ég yrði hálfan daginn í maí, júní og júlí en ég tæki mér frí í ágúst enda fer dagmamman í frí þá.
Þrátt fyrir að vera sátt við mína ákvörðun þá er ég samt að leitast við að aðrir samþykki mína ákvörðun og láti mig vita að ég er að gera börnunum mínum "gott". Það er það sem mér finnst svo einkennilegt hvernig geta aðrir sagt mér hvernig sé betra að hafa þetta, er einhver ein leið sú rétta!!!!
Ég er nú einmitt þannig að ég vill að börnin mín elski mig eins og börn gera alltaf en ég vil ekki að þau séu háð mér, ég hef séð börn sem hanga í foreldrum sínum og það má enginn annar nálgast þau þá finna þau fyrir óöryggi og halda fastar; Ekki myndi ég vilja venja slíkt barn á leikskóla eða aðra pössun.

Veröld mín er bara með kyrrum kjörum engar fréttir svosem, jú Jórunn mín tók þessa síðu í gegn og er ég bara alveg í skýunum yfir henni, núna verð ég bara að reyna að semja við Vinkonu mína um að græja síðuna hjá krökkunum, gera hana flotta og fína.
Það fer nú að styttast í að Jórunn komi heim, ég tel dagana, það verður svo gaman að sjá hana;) Og svo ætla ég að safna fyrir húsmæðraorlofsferð til hennar, það væri svo gaman að fara til hennar ein í smá frí, láta reyna aðeins á Einar;) ég efast nú samt ekki í augnablik að hann Einar minn græji ekki málin á meðan ég yrði í burtu hann getur það sem hann vill.... hann hefur aldrei sýnt annað. Svona er þetta hjá mér ég hef í gegnum tíðina raðað frábæru fólki í kringum mig og svo sannarlega hef ég valið vel.......takk allir;)

Ég elska svona veður eins og er í dag það er kalt en það er sól og alveg heiðskýrt, ég horfi út um gluggan minn og sé fallegu fjöllin hérna í kring, þetta er svolítið annað en grasið sem ég sá bara í kjallaraíbúðinni í Drápuhlíð.

Jæja skyldan kallar, kannski við séum að tala um kúkableygju núna???
Sem minnir mig á, það gerðist svolítið fyndið en jafnframt ógeðslegt hérna í gær, ég var að viðra rassinn á dömunni minni, ef dömu skyldi kalla, Ester Una lá á teppinu sínu bleyjulaus svo allt í einu leit ég á hana og þá var hún búin að velta sér, geðveikt dugleg!! ég fór til hennar og fann þá eithvað vonda lykt........ojoj..... haldið þið ekki að hún hafi verið búin að kúka á teppið og allt útum allt. Við erum að tala um að þetta gerðist á 1 mínútu....... Kannski það hafi verið svona rosalega mikil áreynsla að velta svona að hún bara kúkaði á sig. Æi greyið litla;) en henni fannst þetta bara fínt uppskar bað með mömmu sinni.

Kveð ykkur í bili bæjó
Ása Húsmóðir með meiru;)

fimmtudagur, mars 02, 2006

Sjónvarpsstjörnur

Við Ester Una gerðumst sjónvarpsstjörnur í dag, það var verið að taka upp fyrir þáttinn "Fyrstu skrefin" sem er sýndur á Skjá einum og við vorum beðnar að vera með í ungbarnanuddtíma sem var myndaður. Það verður gaman að sjá útkomuna næsta miðvikudag.... en það var svo fyndið að litla prinsessan mín fór bara að skellihlæja fyrir myndavélina enda þegar hún byrjaði í hláturskasti þá hljóp myndatökukallinn af stað til að ná henni á mynd, voða sætt........

Annars er lítið að frétta af mér, var samt að komast að því að ég er bara bráðum að fara að vinna aftur Ester Una er að verða 4ra mánaða og mér finnst hún hafa fæðst í gær..... ég trúi því ekki að hún fari til dagmömmu bara í maí. Þetta fæðingarorlof er allt of stutt, ekki það mér finnst gaman að fara í vinnuna og ég hlakka til þess, en að vissu leiti kvíði ég fyrir líka því litla stelpan mín er svo lítil ennþá. Það þýðir víst ekkert að gráta það núna, besta að njóta bara tímans með henni heima.
Öskudagurinn er afstaðinn Elvar Máni fór sem lítill íþróttaálfur og var alsæll, þessi latabæjarbúningur var svo drullu lélegur að ég varð að gjöra svo vel að endursauma hann eins og ég er nú fær í handsaumi þá gékk þetta bara furðu vel og hann raknaði bara ekkert upp allann daginn. Ég kíkti í Smáralindina og þar voru ekkert nema litlar syngjandi júróvison Silvíu Nætur allt niðri 2ja ára pæjur, ég verð nú eiginlega að játa það að mér fannst það ekkert smart að sjá litlar stelpur í korsiletti en svona er heimurinn í dag, þegar ég var lítil þá fannst manni voða fínt á öskudaginn að vera pæja, þá var maður í rifnum fötum með bleikt spreyjað hár eða í klipptum ruslapoka. Við vorum ekki eins og litlar gleðikonur en það finnst smart núna. Ég sá líka hóp af stelpum klæddum sem playboy kanínur. Ég var voða fegin að eiga bara einn litinn fullklæddan íþróttaálf:)

Jæja þá er mín litla sjónvarpsstjarna að vakna og þá kveð ég bara í bili;)
kv. Ása beautybolla

föstudagur, febrúar 24, 2006

jæja gott fólk þá er frábær dagur afstaðinn;)
Ekki að þessi dagur hafi verðið eithvað ólíkur öðrum dögum vikunnar, einhverja hluta vegna þá á ég í erfiðleikum með að finna uppá nýjum hlutum til að gera. Jú við Ester Una sofum mikið, förum í göngutúra, sofum meira, förum í göngutúr í Kringlunni og erum jú heima að dunda okkur eithvað?? Annars var dagurinn góður við vöknuðum snemma og fórum með Elvar Mána á leikskólann og svo fórum við eftir hádegi í göngutúr í 4 klukkutíma... já ég var geggjað dugleg ég er í aðhaldi muniði "hóst" að vísu var stoppað í millitíðinni á ágætis kaffihúsi hér í Firðinum og fengið sér að borða ,eithvað fitandi svo engum hitaeiningum yrði brennt, hangsað þar í 2 tíma og gengið heim.... en ég var samt dugleg ég hefði getað verið heima sofandi;)
Ég heyrði í henni Jórunni vinkonu minni sem býr í dk. um daginn og hún bauðst til að gera þessa bloggsíðu eins flotta og mögulega er hægt, hún er nefnilega svo klár í svona tölvumálum enda í svoleiðis námi. Það verður gaman að sjá hvernig síðan verður þegar hún er búin að setja mark sitt á hana.... takk Jórunn;)

Annars smellti ég mér á djammið seinustu helgi svona í tilefni af afmælinu mínu og ég varð vægast sagt fyrir vonbrigðum, það var bara ekkert eins skemmtilegt og mig minnti að það væri alltaf. Ég er greinilega orðin gömul, svo varð ég svolítið þunn og viti menn það er sko ekki tilfinning sem ég hef saknað!!! rosalega er ömurlegt að vera timbraður.... en allavegana þá ætla ég ekkert að djamma neitt fyrr en Jórunn kemur um páskana. Ég held nefnilega að á þessum aldri sé maður bara með djammkvóta og ég ætla svo sannarlega að spara minn.

Jæja ég ætla að fara að slútta þessu, verð að vakna snemma á morgun er að fara í ungbarnasund best að vera vel vakandi þar;)

kv. Ása beautybolla

laugardagur, febrúar 18, 2006

Þetta er í fyrsta sinn sem mér dettur í hug að skrifa, það gæti verið gott þar sem ég er svo mikið ein að koma hugsunum mínum niður á blað.
Ekki er ég neitt svakalega mikil sagna manneskja en kannski það æfist með tímanum.

Á morgun er stór dagur ég verð árinu eldri, ég man að vísu ekkert hvað ég verð gömul en ef einhver spyr þá er ég 24. ára...... hehe vonandi bara að einhver trúi því. Það er svo skrítið að þegar maður sleppur yfir 25.ára þunglyndisþröskuldinn þá skiptir orðið engu máli hvað maður er gamall eftir það því manni finnst maður bara vera gamall!!!!! Ekkert early twenties lengur......;(
En annars er þetta bara í góðu lagi það gæti verið verra ég gæti verðið að verða 30.ára en sem betur fer eru nokkur ár í það ennþá;)

Annars var ég að byrja í átaki aftur eftir að Ester Una fæddist, ótrúlegt hvað húðin tegist langt í svona meðgöngu og maginn er miklu slappari núna en hann var þegar ég gékk með Elvar Mána ég verð bara að drífa mig laga þetta 360 magaæfingar á dag er lykillinn, við skulum sjá til. Ég ætla mér að vera komin í form þegar ég fer að vinna aftur manni líður miklu betur í vinnunni og er öruggarin með sig ef maður er í góðu formi. Eru þeir sem eru í formi ekki hærra launaðir líka? einhvers staðar sá ég það.

Jæja þetta er nú bara svolítið gaman að blaðra svona við tölvuna;)

kv. bollu ása